|
Könnun
Hverjir eru sætastir í heimi?
Brynjar Logi og Ingvar Jökull
5 atkvæði
Synir Díu og Sölva
2 atkvæði
Barnabörn Maju og Halla
1 atkvæði
Systrasynir Freyju og Kristófers
3 atkvæði
Hrísholtsbræðurnir, kenndir við eld og ís
4 atkvæði
Fjöldi atkvæða: 15
|
12.11.2009 15:43:09 / Maja
Þá er þetta nú að taka enda - haustmatarverkin, altso. Búin að gera bjúgu og kjötfars og stelpurnar eru búnar að koma og úrbeina sitt kjöt. Það var mjög skemmtileg helgi - allir heima nema Kristófer og Anna, en þau voru nýbúin að koma á löngu helginni sinni - sem var mjög gaman líka :* Freyja var svo eftir og strákalingarnir mínir líka. Þau fóru í gær eftir sérlega skemmtilegan tíma. Alveg óborganlegir báðir tveir. Ingvar "vinnumaður" er á svo skemmtilegum aldri og ALLT sem kemur út úr honum er bara krúttlegt!!  Brynjar er líka á mjög skemmtilegum aldri núna og farinn að spekúlera í öllu mögulegu. Alveg stanslaust verið að spyrja um hvernig hitt eða þetta virki og af hverju þetta eða hitt. Yndislegur!!!  Þá var nú ekki leiðinlegt að hafa Freyju heima í nokkra daga í rólegheitum. Annars er ég að prjóna eins og venjulega og er líka löt öðru hvoru - eins og venjulega.... Noémi vinnukona er í fríi núna ( fór með Freyju í gær). Hún ætlaði að gera ýmislegt skenmmtilegt og Edda góða ætlaði að lóðsa hana um bæinn í dag. Læt þetta duga í bili, letin er að hellast yfir mig - verð að sinna henni, nema hvað!!! Seinna meir!!
»
22.10.2009 13:00:04 / Maja
Þá er þessi blessaði árstími kominn. Ég get nú ekki sagt að mér finnist gaman að standa í sláturstörfum og matargerð (s.s. bjúgnagerð, kjötfarsgerð, sláturgerð og úrbeiningum..) en það er góð tilfinning þegar allt er komið í kistuna og maður veit að hvað sem gerist á næsta ári þá sveltur maður allavega ekki!!  .... Nema ef rafmagnið fer og allur maturinn eyðileggst í kistunni...  ..... Þá er að taka því.. Ég er farin að hlakka ógeðslega mikið til að fá stelpurnar mínar heim í kjötvinnsluna. Kristófer og Anna komu um síðustu helgi og það var rosalega gaman. Við slátruðum nokkrum nautum, fórum í bíó og höfðum það virkilega notalegt. Þau fóru líka í bíó á föstudagskvöldið - þá fór ég í saumaklúbb á Patró. Ég prjóna eins og vindurinn þessa dagana.. er að gera ermar fyrir Díu og búin með sokka á strákana. Svo ætla ég að fara að fitja upp á poncho-i úr mohair garni, vonandi kemur það vel út  . Já, svo gerði ég hestapeysu á Freyju sem ég er skíthrædd um að sé of lítil.... ahh, það kemur í ljós! Brynjar minn fékk svínaflensuna um daginn og var voða lasinn. Við sendum honum pakka og hann varð mjög glaður með hann..hitt heimilisfólkið í Hrísholti er hresst - ennþá (7,9,13..) Nú nenni ég ómögulega að pikka meira hér.... vona að allir mínir dyggu lesendur gráti ekki úr sér augun yfir því. Bless, mamma mín og bið að heilsa pabba
»
25.09.2009 14:42:29 / Maja
Nú er bara tæpur sólarhringur í brottför hjá mér  . Ég var reyndar að frétta í dag að ég ætti bara venjulegan tíma hjá Sjöfn en ekki magaspeglun...  Ég þarf að hringja þangað á mánudagsmorguninn og reyna að fá speglun líka... Ég er alltaf að prjóna og var að klára peysur á Díustráka og "peysu" á rauðvínsflösku; svolítið sniðug  . Svo er ég búin að finna fullt af síðum á netinu þar sem er talað um prjónaskap og uppskriftir og allt mögulegt í sambandi við þetta... voða gaman að vafra um á því...  Ég var annars að baka 6 bananabrauð til að taka með mér... Vinnukonan er alveg stórfín og ég er ekkert stressuð að vera að fara í burtu. Halli fer auðvitað líka í fjósið þegar hann er ekki að keyra í skólann. Þau hafa bara gott af þessu! Búin að fara 3svar í ræktina - jei- verð að viðurkenna smá harðsperrur í dag og það er bara gott.  Gott í dag!! Blessbless, Majan!!
»
18.09.2009 23:26:23 / Maja
Það er nú nóg að gera hjá mér þessa dagana!! Í gær fórum við Þórhildur í ræktina.... já, ég sagði það!!! Það var mjög fínt en ég þorði ekki að taka allt of mikið á, svona í fyrsta sinn - í langan tíma....eeeen ekki það síðasta! Halli vara í veiði með Helga sínum og skemmti sér konunglega. hann fékk meira að segja einn fisk og var mjög hreykinn af . Ég fór í Haga í dag og heimilishjálpaðist þar fyrir Kiddý. Ég skipti á rúmunum og þurrkaði af, skúraði og gerði svona það sem þurfti.Þetta tók svona 3-4 tíma. Ég var ekki með eins miklar harðsperrur og ég hélt að ég fengi í dag. Segir mér að ég má taka betur á næst, sem verður á þriðjudag þegar Kiddý þarf að fara til Möggu sjúku. Ég er búin að bjóða mig fram sem driver og ætla að nota tímann til að fara í ræktina. Ég veit... ég er dugleg!!  Nóg í dag!! Bleblebleble Ykkar elskandi, Maja....
»
16.09.2009 14:30:22 / Maja
Þá hefur nú heldur betur fækkað í kofanum hjá mér. Þórðarnir fóru í hádeginu og Halli er farinn í veiði með Helga. Hann kemur á föstudaginn. Ég er að fara til Kiddý að hjálpa henni aðeins. Hún er nokkuð spræk með sig. Reyndar fór hún í sjúkraþjálfun í gær og þá er hún oft ómöguleg á eftir. Ég ætla að reyna að plata Þórhildi með mér í ræktina á morgun og reyna að fara að gera eitthvað í mínum málum....þetta gengur ekki svona lengur - og hananú!!!... Kannski ég reyni að taka til í eins og einum skáp og taka með í rauða krossgáminn.... ekki slæm hugmynd atarna!!! Alltaf skítaveður þessa dagana. Það pirrar mig nú satt að segja ekki, mér finnst það bara dáldið notó  Peysurnar, sem ég er að prjóna á kútana, mjakast áfram og ég klára þær í vikunni. Jæja, þá er að drífa sig til tengdó í smá spjalló og prjónó. Svo líka smá hjálpó...frá mér..ó... Múaaahhhhhaaa hhhhaaaa , omg, ein fyndin !!!! Seinna meir!!!!
»
15.09.2009 00:07:10 / Maja
Ákvað að henda inn eins og einu stuttu bloggi áður en ég fer að kúra... Hér eru næturgestir þessa dagana - eða dag/gestir þessar næturnar...  Þórðarnir Þórðarsynir eru á gæsa/anda skyttteríi og það er bara hressandi að hafa þá í eimsókn. Þéir eru nú ekki að veiða neitt grimmt en eru þó búnir að fá 3 endur. Ég er að bögglast við að prjóna peysur á Díu stráka - englana mína  Ég er búin með Brynjars og er með fyrri ermina á Ingvars. Fer svo með þær suður þegar ég fer sem er eftir halfan mánuð. Er allt í einu að leka niður svo ég ætla að fara inn í rúm. Elska ykkur öll með tölu!! Koss inn í draumalandið :*
»
12.09.2009 13:39:03 / Maja
Já góðir hálsar, nú er bloggað sem aldrei fyr!! Nýja vinnukonan komin og gengur ágætlega. Hún er að stúdera norræn fornfræði í háskólanum í Búdapest og er með mikinn áhuga á víkingatímabilinu og íslendingasögunum. Farin að reyna að tala svolítið og hefur áhuga á matargerð íslendinga (og er ánægð með allt sem hún borðar !! :þ ) Hún spilar á svakalegt hljóðfæri sem er ungversk sekkjapípa. Það eru þvílík (ó) hljóð sem koma úr þessu tæki að það er eiginlega helst hægt að spila á hana úti.....en bráðfyndið hljóðfæri. Okkur kemur vel saman og henni gengur ágætlega í fjósinu - kannski svolítið slow en það lagast vonandi...náttúrulega margt sem hún þarf að læra. Ég er að fara suður eftir hálfan mánuð og þarf að fara í magaspeglun. Það á að gá hvort lyfin sem ég fékk í vor hafi gert eitthvað gagn. Ég veit ekki.....ég hlakka ekkert smá til að fara aðeins frá og hitta börnin mín öll. Ég verð hjá Díu í 2 daga fyrir speglunina og fer svo í hana 29. sept. Þá verð ég að fara heim þann 30. Kiddý fór í húsmæðraorlof í gær og er voða gaman hjá henni (Bjarni heyrði í henni í morgun). Hún er í herbergi með Þórhildi og lét vel af sér. Jæja, læt þetta duga í bili! Seinna mín kæru!!!! Spennandi að vita hvort einhver fattar þetta einhvern tíman
»
21.08.2009 10:30:57 / Maja
Já, góðir hálsar. Kannski maður reyni að koma einhverju á síðuna svona til tilbreytingar... þetta facebook....... Nóg um það. Hér er búið að vera nóg (  ) að gera í sumar. Fullt af gestum, börnum og skemmtilegheitum. Veðrið auðvitað frábært, en ekki kannski tími til að njóta þess nógu mikið. Komumst í 2 frí ( 3 dagar hvort) - sem hefði ekki verið hægt nema af því að við eigum svo góð börn og skyldfólk (Jóa mágkona). Nú er farið að hausta töluvert, að minnsta kosti farið að kólna og vinda svo það er bara gott að finna sér eitthvað að gera inni. Jantje vinnukona er farin og er sárt saknað. Hún var mjög þægileg og dugleg. Önnur væntanleg og verður er 24 ára kennari frá Ungverjalandi.... vona bara að hún verði fín....hún verðu til heimilis hjá okkur. Kristófer er að byrja í Tækniskólanum, á hársnyrtibraut. Er bjartsýn með það allt saman. Freyja farin að leigja á Laugarvatni með Bjarna sínum og klárar á Bifröst um jólin - duglega mín.... Día vinnur á leikskólanum á Laugarvatni og er ánægð með það. Það er bara búið að vera of mikið að gera hjá þeim hjónum í sumar og þau lítið getað komið - svo stolt af þeim öllum  .... ég veit eiginlega ekki fyrir hver ég er að skrifa þetta.. allir á facebook eins og ég.. Þetta verða bara sögulegar heimildir eftir 20 ár!!  Kannski maður fari að gera þetta öðru hvoru svona til gamans... Elska ykkur öll sem kíkið hingað... og fleiri til...
»
09.02.2009 10:57:48 / Maja
Jæja, þá er nú baðið orðið fínt  Día kom með strákana ogþað var gaman - eins og alltaf þegar þau koma. Þeir eru náttúrulega svo spes þessir drengir  . Svo fóru allir og það varð ósköp tómlegt. En maður lifir bara á þessu þangað til næst  . Þá tók við þorrablótsundirbúningurinn.. Það er svo svakaleg aðsókn á blótið að við erum í standandi vandræðum. Ætlum samt að reyna að troða í salinn eins og hægt er og vonum að það verði ekki margir frá að hverfa. Æfingar ganga ágætlega og ekki slæmt að hafa svona fín skáld í nefndinni eins og Bjarna tengdó og Lóu á Breiðalæk. Þessa vikuna verðum við á fundum á hverju kvöldi. Kristófer fékk bílprófið um daginn og er mikið glaður með það. Ég er sú stressaða því það er auðvitað fljúgandi hálka og allt svoleiðis..  Vona bara að hann fari varlega.. en er ekkert voðalega bjartsýn... Jæja þangað til næst!!!!:*
»
17.01.2009 22:36:31 / Maja
Hvað segið þið gott? Héðan er allt ágætt að frétta. Hákon mágur minn er að koma hingað á morgun ásamt spúsu sinni og ætlar að fara að taka baðherbergið mitt í gegn. Við vorum að tæta allt innan úr því áðan og henda út í kerru. Svo að nú er engin hurð fyrir klósettinu.... bara gaman að því!  Ég skrapp í mjög snögga ferð í höfuðstaðinn í vikunni. Það var svona dæmigerð þeytingsferð og ekki mikið hægt að slappa af. Þorrablótið er framundan og við erum í nefndinni. Einn fundur búinn og við steingeld og dettur ekkert í hug!!! En ég efast ekki um að það verður frábært blót, engu að síður  Bjarni tengdó er farinn suður til að vera hjá Kiddý líka tengdó. Hún var í aðgerð í vikunni þar sem nýr hnjáliður var settur í, og það gekk vonandi bara ágætlega. Ég fór svo á námskeið á Hvanneyri á fimmtudaginn og hitti Teddu frá Brjánslæk og gisti svo hjá Siggu vinkonu í Borgarnesi. Alltaf gaman að hitta hana. Svo gat ég hitt bæði Díu og Freyju...en vantaði sárlega að sjá strákana mína Díusyni  Ég held í þá von að þau komi fljótlega..... Læt þetta duga að sinni,, bleble
»
15.12.2008 10:35:43 / Maja
Sælt veri fólkið! Hérna gengur allt sinn vanagang á þessum árstíma. Jólaundirbúningurinn er kominn vel á veg - þökk sé kvenfélagsmatnum!  Ég á samt eftir að baka meira og við ætlum að gera laufabrauð og ýmislegt fleira. Séra Sveinn ætlar að hafa kveðjumessu á fimmtudaginn og við þurfum að hafa kaffi á eftir. Við dauðsjáum eftir honum, en vonandi kemur góður prestur í staðinn. Kiddý ætlar að reyna að koma í matinn hjá mér í kvöld, en ég er ekki viss um að veðrið leyfi það... hún kemur náttúrulega ekki nema það sé rjómalogn og blíða. Vonum það besta!! Kristófer er í höfuðborginni núna og kemur aftur á miðvikudaginn. hann fer samt vestur og kemur ekki fyrr en rétt fyrir jólin - kammski um helgina. Freyja ætlar að reyna að koma á föstudaginn. Halli fer aftur á móti á fimmtudaginn og svo kemur Bjarni með honum á mánudag. ég hlakka bara til að vera ein með Freyju minni um helgina - og Kristófer ef hann verður kominn.  Jæja, það er nú best að fara að reka smiðshöggið á tiltekt og undirbúning fyrir kvöldið!! Lifið heil!!!
»
01.12.2008 10:24:01 / Maja
Þá er maður búinn að fara jólaferðina og það er nú alltaf ágætt. Ég var svo heppin að Gulla systir var í bænum og við gátum aðeins náð að vera saman. Við borðuðum á Austur Indía fjélaginu - mjög góðan mat. Svo heimsóttum við bræðurna, Steina og Svan og ég fór til Brynjólfs líka. Ég fór til Kiddý á hverjum degi og hún er bara hress með sig. Vonandi getur hún aðeins komið heim um jólin en það á nú eftir að koma í ljós. Jólagjafirnar eru komnar í hús og gekk nú ágætlega að finna eitthvað nógu ódýrt í kreppunni. Börnin mín og tengdabörn voru reyndar höfuðverkur eins og venjulega en á endanum kláraðist það - eins og venjulega! Nú verð ég að fara að þrífa hérna húsið og baka og allt það. Kvenfélagið borðar hér hjá mér á aðventunni ( var að hugsa um 14. eða 15., hvernig líst þér á það,Fanney?) ogþá verður allt að vera orðið fínt hérna. Svo þarf eitthvað að huga að neðri bænum... Hlakka til þegar Freyja mín kemur, ég reikna nú samt ekki með henni alveg strax  Bestu kveðjur til ykkar allra og mamma : ég ætla að fara að hringja í þig!!
»
19.11.2008 11:18:17 / Maja
Þá erum við búin að fara á árshátíðina. Það var alveg ágætisskemmtun og góður matur. Skemmtilegt fólk, og hvað er hægt að hafa það betra? Ég hitti Lilju Björk, hún kom og heilsaði mér. Ég var nú reyndar búin að hugsa með mér að það gæti alveg verið að hún yrði þarna en var ekki búin að koma auga á hana. Alltaf gaman að hitta eyfellinga!! Við fórum til Siggu Ævars og Benna á laugardeginum þegar við komum í Borgarnes. Þau eru svo yndisleg og gott að heimsækja þau. Við gistum svo hjá Bryjólfi og Guðfinnu og væsti ekki um okkur þar. Mánudagurinn var smáklikkun, -þeytingur fram og til baka og náðist ekki einu sinni allt sem við þurftum að gera. Kiddý var nokkuð hress og Bagga kom á meðan við vorum þar. Gaman að hitta hana  Svo borðuðum við kvöldmat hjá Freyju Rós  Við vorum komin heim fyrir hálf tólf - dauðþreytt  Jantje gekk vel á meðan við vorum í burtu og ég segi það enn og aftur: þetta er ómetanlegt, að hafa svona góða vinnukonu! Hún þurfti meira að segja að sprauta kú, sem hún hefur aldrei gert, og kláraði það með stæl!! Nú er hún að fara í smá frí. Hún ætlar með Baldri í dag (á puttanum) og kemur á sunnudaginn. Þá fer ég aftur; nú á námskeið í kúaforriti á Hvanneyri. Ég ætla svo að halda áfram suður og kíkja á kútana mína og helst að klára jólaferðina  - hvernig sem það gengur nú.... Jæja gott fólk, vonandi sé ég sem flesta í þeirri ferð og hafið það sem allra best í blíðunni. Ha det bra saa lenge!!
»
31.10.2008 10:45:35 / Maja
Ekki alveg að standa mig hér...  Við erum búin að hafa mikið að gera. Sláturverk er að verða búið, búin að gera kjötfarsið (sem ég kveið þessi ósköp fyrir), það heppnaðist mjög vel. Svo gerði ég kjötbúðing (ekki alveg eins góður -- en ég get reddað honum), bjúgu (fín) og kæfu (lala) já og svo lifrahakk sem er nú ekki mikil kúnst. Þetta tekur allt tíma og maður gerir ekki mikið annað á meðan. Nú er bara eftir að úrbeina nautið og hangikjötið þegar þar að kemur. Mikið lifandis ósköp verð ég fegin þegar allt er komið í kistuna. Bjarni er kominn heim,ánægður með ferðina sína. Það eru ekki góðar fréttir af Kiddý, hún er komin með sýkingu í hnéð aftur og liggur á spítala. Þetta eru mikil vonbrigði, því hún var öll að hressast og líkaði svo vel á Reykjalundi. Við vitum ekki núna hvað læknarnir ætla að gera í þessu. Maður varð niðurdregin við þessar fréttir.. Samt eru líka ljósir punktar.. krakkarnir koma öll heim um helgina og tengdasynirnir líka!!! Það verður frábært. Þau eru að koma til að úrbeina naut sem þau fá hjá okkur, við nennum ekki að gera það fyrir þau - svo er þetta góð ástæða til að fá þau í heimsókn!! Búið í bili....
»
19.10.2008 14:12:16 / Maja
Ekki held ég það. Allir frískir, nóg að borða og þá er í raun og veru ekkert að... Æ, ég ætlaði að blogga eitthvað voðalega gáfulegt um efnahagsmálin en ég nenni því ekki enda hef ég ekkert meira um það að segja - allavega ekki neitt sem breytir neinu. Við vorum að slátra í gær og það gekk alveg eins og í sögu. Við vorum búin fyrir kaffi og fórum þá í afmæliskaffi í Tungumúla. Hákon og co. eru þar um helgina og Guðrún Anna átti afmæli. Voða notalegt..  Í gærkvöldi grilluðum við svo hrygg og læri og buðum þeim í mat. Þau eru svo hress og kát að þetta var hin fínasta kvöldstund. Í dag á Halli afmæli. Stína búin að hringja og ég spjallaði heillengi við hana. Mamma er líka búin að hringja og svo hefur hann fengið kveðjur á facebook- síðunni minni. Það er nú einum of skemmtilegt að fikta þar....;/ Kiddý er komin á Reykjalund og líst voða vel á sig þar. Allt vonandi uppávið þar!! Framundan er matargerð og stúss og verður gott þegar það er búið-og kistan full af mat! Takk fyrir öll kvittin, þó sum séu sársaukablandin  halda svona áfram! Læt þetta duga úr ekkikreppusveit, bleble í bili, Majan
»
Síður: 1 2 3 ... 7
|
Heimsóknir
Í dag: 7 Alls: 16955
|