Nú er bara tæpur sólarhringur í brottför hjá mér

. Ég var reyndar að frétta í dag að ég ætti bara venjulegan tíma hjá Sjöfn en ekki magaspeglun...

Ég þarf að hringja þangað á mánudagsmorguninn og reyna að fá speglun líka...
Ég er alltaf að prjóna og var að klára peysur á Díustráka og "peysu" á rauðvínsflösku; svolítið sniðug

. Svo er ég búin að finna fullt af síðum á netinu þar sem er talað um prjónaskap og uppskriftir og allt mögulegt í sambandi við þetta... voða gaman að vafra um á því...

Ég var annars að baka 6 bananabrauð til að taka með mér...
Vinnukonan er alveg stórfín og ég er ekkert stressuð að vera að fara í burtu. Halli fer auðvitað líka í fjósið þegar hann er ekki að keyra í skólann. Þau hafa bara gott af þessu!
Búin að fara 3svar í ræktina - jei- verð að viðurkenna smá harðsperrur í dag og það er bara gott.

Gott í dag!! Blessbless, Majan!!