Hagafréttir
Könnun
Hverjir eru sætastir í heimi?
Brynjar Logi og Ingvar Jökull
5 atkvæði

Synir Díu og Sölva
2 atkvæði

Barnabörn Maju og Halla
1 atkvæði

Systrasynir Freyju og Kristófers
3 atkvæði

Hrísholtsbræðurnir, kenndir við eld og ís
4 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 15
25.03.2008 23:52:17 / Maja

páskar búnir-orðið pínu tómlegt aftur

Þá eru páskarnir búnir og allir farnir. Día og Sölvi fóru heim í gær með litlu kútana okkar. Það var alveg frábært að fá að hafa þá í nokkra daga og fá að spilla þeim í friði :p. Það var ekkert mál með Jökulinn á kvöldin þó hann væri að hætta á brjósti-enda eru þeir báðir svo vel upp aldir!! Hann byrjaði að taka 2-3 skref á milli manna þegar hann var hér, og svo kíkti fyrsta tönnin, um leið og hann kom aftur heim. Mikið að gerast hjá mínum manni. Brynjar, elsku kallinn var líka yndislegur og gaman að fara út að leika, lita eða gera allt sem ömmur geta gert sem eru alltaf til staðar. - Gaman að vera "amma til staðar":d Ég ætla nú ekki að blogga mikið núna.
Maður er hálf utan við sig núna útaf Kiddý, en þið vitið sjálfsagt flest sem lesið þetta, að hún er á sjúkrahúsi í Reykjavík, mikið lasin. Við verðum bara að senda henni sterka strauma og hlýjar hugsanir og vona að hún fari að hressast.
Ekki meira í bili, nema það að Kristófer er á leiðinni með flutningabíl frá Reykjavík og er fastur hinum megin við Klettsháls sem er ófær. Þannig að hann verður að sofa í bílnum í nótt.:s:(


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.03.2008 12:59:46 / Maja

yndislegt veður-dag eftir dag!!

Sælir og blessaðir, mínir dyggu lesendur! Það er svo fallegt veður hér núna alla daga að maður er orðlaus. Það verður allt svo fallegt og hvítt og hreint og glitrar á snjóinn eins og hann sé úr demöntum. Alltaf jafn hrifin af því!
Það er mikil hreyfing á fólki þessa dagana. Freyja kom á fimmtudaginn og fór á árshátíðina hjá Kristófer þar sem hann söng eins og engill í hljómsveit- mjög flott!. Halli fór suður í gær og Día kemur í dag með strákana. Bjarni kom í gær og Rakel og vinir hennar með. Þau kíktu í gærkveldi og heilsuðu okkur. Alltaf gaman að hitta Rakel. Þá má nú ekki gleyma Hákoni og Birnu en þau komu líka á fimmtudaginn. Birna var með KÞH í aukatíma í íslensku í gær, þessi elska! Hákon tók hann svo í ökutíma fyrir æfingaaksturinn og það gekk mjög vel.
Freyja fer á mánudag, Kiddý kemur á þriðjudag og Halli aftur á miðvikudag. Día fer á fimmtudaginn en- skilur strákana eftir:d:lol::haha:. Þau koma svo bæði að ná í þá eftir að vera búin að fara í fjallaferð, hún og Sölvi. Kristófer fer með Bog H á morgun!! Hann ætlar að fara í tíma hjá þeim báðum og heimsækja æskuslóðir mínar í Stóru Mörk-- ef hann má.


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.03.2008 16:21:23 / Maja

home alone..

Þá er ég nú ein heima og finnst það bara alveg ágætt. Kristófer er farinn á Samfés og Halli fór á Hrútafjörð að ná í krakka frá Patró sem hafa verið þar í skólabúðum þessa vikuna.
Mér leiðist aldeilis ekki, heldur nýt þess að vera ein með sjálfri mér og geri bara það sem ég vil.
(t.d. er ég að fá mér kókópuffs í kaffitímanum):haha:
Ég þurfti að fara á traktornum út á Breiðalæk áðan til að ná í lyf í kvígu sem er veik. Landinn er á verkstæði (e-ð með altenator og díóður...:$) og ég held að það sé aðeins of mikill snjór fyrir Yaris ;).
Ég hef verið að hugsa 8| upp á síðkastið, hvað ég er ótrúlega heppin með margt og hvað það er margt sem gefur lífinu gildi. T.d. á ég svo yndisleg börn að það hálfa væri nóg:d. Það bjargar alveg leiðinlegum degi að fá svona sms frá kútnum mínum: "elska þig og sakna þín" - alveg upp úr þurru.
Eða símtal frá Díu sem byrjar svona:"þú ert alveg hætt að hringja í mig" þegar ég talaði við hana í fyrradag, og þegar Freyja leggur á sig að koma yfir helgi, þegar það er brjálað að gera hjá henni í lærdómnum; elska ykkur öll svo mikið;)
 Svo er ég ótrúlega heppin með BÁÐA tengdasynina; alveg yndislegir drengir! Síðast en ekki síst ömmustrákarnir sem eru svo mikið yndi að það er ekki hægt að lýsa því - það skilja allir hvað ég er að tala um sem þekkja þá... Svo er auðvitað hann Halli minn sem er búinn að vera partur af mínu lífi í bráðum 26 ár og ég af hans :lol:;). Sé það ekki alveg fyrir mér öðruvísi!
Nú, þá er ég ekki búin að minnast á foreldra mína, systkinin mín, tengdaforeldra, og alla hina sem eru mér svo mikils virði. Elska ykkur líka endalaust!

Annars gengur lífið sinn vanagang hér; svolítið mikið vesen í fjósinu eins og oft á þessum árstíma þegar margar kýr/kvígur eru að bera og því fylgir ýmislegt ( júgurbólga, súrdoði, doði; you name it!) Fínt veður í dag og spáir sama næstu daga, held ég. Maður er orðinn langþreyttur á þessu veðurfari. Það er allt eitthvað svo MIKIÐ,- mikið rok, mikil rigning, mikil snjókoma......en daginn er farið að lengja og allt á réttri leið.
 Með því kveð ég að sinni. Veriðisæl, Majan


» 10 hafa sagt sína skoðun

04.03.2008 23:38:29 / Maja

mér finnst rigningin goóð-darararara-gooóóð

Það er alveg ótrúlegt hvað hægt er að rigna á einu litlu landi!! Fyrst mokaði svoleiðis niður snjónum í morgun og svo fór að rigna- og rigna - og rigna (ég gæti haft allt bloggið svona en læt þetta duga!!:p) þetta er svosem ágætt því þá fer snjórinn en ekki get ég nú sagt að mér finnist þetta skemmtilegt á meðan á því stendur.
Ég fékk svo skemmtilegann póst í gær frá Brynjari Loga . Það var teikning af mér, afa og honum sjálfum. Ég er með eyrnalokka eins og alltaf:haha:, Halli var með staf svo hann yrði ekki þreyttur í fótunum sínum og Brynjar sjálfur var að öskra "TRÚÐUR". Svo skrifaði Día eftir fyrirmælum og það var t.d. "Ég elska þig amma og afi. Ég vildi að þið vilduð eiga heima þar sem ég á heima- bæbæ, Brynjar Logi." Mesta yndi sem er til, held ég!! Get ekki beðið eftir að Ingvarinn byrji að tala og komi með sín gullkorn (bendi fólki sem ekki kíkir á gullkornin hjá Brynjari, að gera það!!!)
Jæja, ég ætla að reyna að fara að leggja mig!! Bleble (long time no "bleble") Maja


» 4 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill
Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 17611